Myndir til kynningar
Vala Ómarsdóttir
"Dætur" (Vor 2018)
"Dætur" fjallar um einstæða móður og dætur hennar tvær. Á meðan móðirin leitar að karlmanni til að bjarga sér frá erfiðleikunum sem því fylgir að vera einstæð móðir, sækist eldri dóttirin eftir því að vera ábyrgðarlaus unglingur. Það hefur þó ófyrirsjáanleg áhrif á þann sem síst skildi.
Mahesh Raghavan
"Þessi eina nótt" (Haust 2018)
Líf parsins Paul og Gloria breytist skyndilega eftir saklaust rifrildi á föstudagskvöldi. Paul vonar að þetta sér bara eitt annað kjánalegt rifrildi sem mun jafna sig yfir helgina. En Gloria verður alvarlega veik á laugardeginum. Paul eyðir næstu klukkutímum uppi á spítala og bíður eftir að Gloria vakni svo þau geti sæst.
Emil Alfreð Emilsson
"Þrír menn" (Vor 2017)
Faðir og tveir synir hans búa í einangraðri sveit úti á landi. Samband þeirra er torsótt þar sem mismunandi viðhorf til lífsins skarast. Eftir uppákomu í fjölskyldunni og pressu frá föður sínum finnur eldri bróðirinn sig knúinn til þess að haga sér nær aldri sínum og að verða um leið betri fyrirmynd fyrir yngri bróður sinn.
Guðni Líndal Benediktsson
"No homo" (Vor 2012)
Fyndið hvað lífið getur tekið algjörum stakkaskiptum út af einni setningu. Það þarf svo lítið til að rústa öllu jafnvægi. Ekki það að Arnar sé eitthvað fordómafullur, alls ekki. Svona fólk má endilega vera til. Hann átti bara eiginlega ekki von á þessu. Því þetta kemur bara fyrir annað fólk. Er það ekki ?
Óttar Thorbergsson
"Heima" (Vor 2018)
Tækifæri til þess að verða listmálari blasir við ungum dreng sem átt hefur þann draum alla sína tíð. Vegferð listarinnar þekkist ekki á hans heimili og yrði hann því að fara á skjön við fjölskyldu sína til þess að draumur hans rættist.
Gunna Helga Sváfnisdóttir
"Monika" (Vor 2011)
Monika hefur alltaf verið fyrirmyndar samfélagsþegn, dóttir, eiginkona, nemandi og starfsmaður, en streitist á móti þegar fullkomnunin virðist algjör. Hún gerir sér grein fyrir því að hingað til hefur allt verið metið á andlausan mælikvarða; einkunnir, álit annara, launatékkar. Hún heldur í andlegt ferðalag sem tekur á, en að lokum er vel þess virði.
Ólöf Birna Torfadóttir
"Síðasta sumar" (Vor 2016)
Sandra er aftur flutt heim til foreldra sinna en hún hefur fengið vinnu í kjötvinnslufyrirtæki þar í sveit. Yfirmaðurinn er ekki sá skemmtilegasti, verkstýran með nokkrar lausar skrúfur og starfsfólkið almennt hið furðulegasta. Hins vegar hefur Sandra við stærra vandamál að stríða heima fyrir; foreldrarnir fastir í "lollypop" landi, allir með augun lokuð og vandamál í sjónvarpsherberginu.
Óli Jón Gunnarsson
"Gunna" (Vor 2012)
Gunnar er einstæður bóndi á afskekktum stað. Hann býr með kindunum sínum í friði og ró í sveitinni og vill hvergi annars staðar vera. Einn daginn á sér stað atvik sem gæti haft áhrif á líf hans til frambúðar.
Helena Rakel Jóhannesdóttir
Bland í poka (Vor 2019)
Þegar móðir og ungur sonur hennar af erlendum uppruna flytja inn í blokkina þar sem Fjóla, fordómafull eldri kona býr, þarf hún að finna leið til að losa sig við þau, en óvænt vinátta myndast milli hennar og stráksins.
Anna Karín Lárusdóttir og Hekla Egilsdóttir
Milli Tungls og Jarðar (Vor 2018)
Sagan segir frá pólskri fjölskyldu sem búsett er á Íslandi, tveimur árum eftir dularfullt hvarf elsta sonar þeirra. Myndin skoðar hvernig fjölskyldan tekst á við missinn á mismunandi hátt og hvernig þau fjarlægast hvort frá öðru í kjölfarið.
Katla Sólnes
With the Arrival of Spring (Vopr 2019)
Þegar hriktir í stoðum vináttu Kötu og Önnu , þurfa þær að læra upp á nýtt að treysta hvor annarri.
Bergur Árnason
Mánudagur (Vor 2019)
Sögur þriggja persóna sem glíma allar við mismunandi tegundir af einangrun í stórum grunnskóla tvinnast saman yfir einn skóladag.
Magdalena Ólafsdóttir
Skýjaborgin (Vor 2023)
Ung stelpa ákveður að finna horfinn pabba sinn og lendir í kjölfarið í atburðarrás knúna af sínu eigin ímyndunarafli.
Marie Lydie Bierne
Sophie (Vor 2023)
Líf Sophie mun breytast að eilífu eftir örlagaríka nótt í bústaðarpartíi.